Jæja loksins loksins læt ég í mér heyra!
Við erum allavega komin frá Kanarí og erum enn á lífi.
Neinei það var rosalega fínt úti en vorum bara viku og ég
geri það ekki aftur. Við fórum út 27des og komum heim 3.jan, þannig
að við vorum úti um áramótin. Flugeldasýningin úti er ekkert í
líkingu við þetta hérna heima. Ég leit á klukkuna þegar hún var
búin og hún var 00:04, sem sagt stóð yfir í ca 5 mín eða svo. Ég
hef reyndar ekki verið hérna heima úm áramótin núna 4 ár í
röð. Er farið að langa svoldið að vera heima á þessum
tíma. Vorum líka með stelpuna hans Jonna með okkur og það
var bara roslega fínt. Hún er svo mikil skotta... Mamma og Pabbi
lentu í einhverju kakkalakkaveseni eins og alltaf greyin. Það var
víst bara fullt af lífi undir eldhúsinnréttingunni. En hótelið
reddaði því strax og flísalagði allt í kringum sökkulinn sem var
ekki. Svo var alltaf einn og einn að kíkja í heimsókn. Við sluppum
reyndar alveg. Sáum stundum á leiðinni í gegnum garðinn á kvöldin
en ekkert sem drepur mann.
Svo tekur bara við næsta ferð sem verður skíðaferð til
Noregs, nánara tiltekið Trysil. Ohhh hlakka svo til. Við verðum 9
em leigum kofa saman uppí fjalli og svo verður bara skíðað úr
kofanum niður brekkurnar í næstu lyftu. Ég fór líka í fyrra
með Taníu og Inda og það var bara stórgaman. Núna verðum við aðeins
stærri hópur og bara meira fjör.

Við Jonni fórum með Ronju okkar í hvolpskóla um daginn
og það gekk bara rosalega vel. Hún er orðin svo dugleg þessi elska.
Mér finnst svo skrítið hvað manni getur þótt ótrúlega vænt um eitt
dýr. Hún er bara ekki dýr fyrir mér, hún er mér sem barn. Mér
finnst svo erfitt að fara frá henni þegar ég er að fara í vinnu að
það er halfasnalegt. But that´s life... Maður verður víst að
vinna
Við H6 saumaklúbburinn hittumst á föstudaginn heima hjá
mér og bjór og hvítvín voru í boði. Það var mikið spjallað og
hlegið og svo kíktum við aðeins niðrí bæ sem sagt á
föstudagskvöldi. Hpunkturinn og Yello voru lokað. Þannig að
samansafnið af þessum fáu hræðum sem voru á djamminu voru þar, og
var reyndar fullt þar inni. En ég verð að segja ykkur frá einu
fáranlegu sem ég lenti í þetta kvöld. Ég var að bíða á barnum eftir
að konan var að gera í glas fyrir mig og tek eftir því að
strákurinn við hliðiná mér horfir svo á mig... Nennti samt ekkert
að spá í því þar til hann spyr mig "Afhverju lýtur þú alltaf svona
illa út"

Ég bara gapti og horfði á manninn, vissi ekkert
hvað ég átti að segja og labbaði í burtu með glasið! Viljiði spá!
ég er nú ekki þekkt fyrir að vera eitthvað alltaf illa höfð þannig
ég er bara miður mín. ég myndi nú ekki einu sinni láta þetta út úr
mér við manneskju sem liti alltaf illa út!!! Ég vill comment á
þetta, takk fyrir takk... Lýt ég alltaf svona illa út?
En svo var mestmegnis af laugardeginum eytt í þynnku þar
til kvöldið nálgaðist og byrjað að djúsa aftur. Fórum ég, Jonni og
Sóley í afmæli til Fötmu og svo eitthvað niðrí bæ. Það bara snjóaði
og snjóaði. Langt síðan maður hefur séð annað eins...
Jáááá eitt enn svo styttist í afmæli mitt sem er 26.jan.
En ég og Begga ætlum að halda afmælin okkar saman sem samtals verða
50 ár og þar sem ég bý á efri hæðini hjá henni þá ætlum við bara að
hafa geggjað bartý og opið á milli hæða. 10.feb eftir skíðaferðina
miklu þannig það er mikið að gerast á næstunni...
Verð að kveðja er að vinna og vaktin er að fara að
mæta... Bið að heilsa og hafiði það gott elsku
dúllur!!!